Nýtt bloggÁrný Hekla Marinósdóttir
Jæja,nú ætla ég að byrja aftur að segja ykkur frá öllu mögulegu sem gerist í mínu lífi, vei, vei.Ég gafst algjörlega upp á gömlu síðunni minni löngu fyrir jól. Mikið ofsalega var sú bloggútfærsla leiðinleg í notkun, sífellt breytandi letrinu sjálfkrafa og það var nánast ómögulegt að koma inn nokkrum myndum lengur. Ég hef tröllatrú á að ég verði ekki geðveik á þessari bloggnotkun, sjáum til.

Ég hef nú gert margt síðan á jólunum, ég er til dæmis alveg flutt til hans Magga mín á Skólavörðustíginn. Allt mitt dót komið þangað og það er voða kósý. Hvern hefði grunað að ég myndi finna svona gullmola eins og hann? Ég skal ekkert fara út í væmni núna.
Við fórum saman til útlanda um páskana, byrjuðum á því að fara til Englands 12. apríl. Vorum hjá vinum hans rétt fyrir utan Leiscter. Jói Kalli og Jóka eru algjörir höfðingjar heim að sækja og mjög gaman hjá þeim. Í Englandi fórum við á tvo fótboltaleiki, fyrst á Leiscter leik þar sem við fengum að fara á einskonar "VIP" svæði þar sem þetta var liðið sem Jói Kalli spilar með. Það var mjög þægilegt og skemmtilegt að sjá hvernig þetta gengur fyrir sig. Síðan fórum við á Liverpool leik, það var nú meira ævintýrið því þetta var á pásakasunnudag og lestarsamgöngurnar voru alveg ferlegar, vægast sagt. Þetta var því í heildina 14 tíma ferðalag, eins gott að Liverpool vann segi ég nú bara.
En við fórum líka mikið út að borða og náðum að slappa vel af.

Næst lá leið okkar til Amsterdam þann 17. apríl. Þar gengum við um allar götur og skoðuðum heilmikið. Þetta er mjög skemmtileg borg og margt sniðugt að sjá. Þar tókst mér líka að versla örlítið, en þó hélt ég aftur af mér því ég ætlaði að versla á lokaviðkomustaðnum. Eitt verður samt að segjast, mér fannst ekkert gaman að skoða þetta margfræga rauða hverfi og mér finnst þetta blessaða frelsi Hollendinganna vera ofmetið. Grey hórurnar minntu mig helst á almenningssalerni. Ekki geðslegt það. Mér fannst þetta fólk vera hálfgerðir fangar frelsisins, ef einhver skilur hvað ég á við.
Seinast fórum við svo til Köben 20. apríl þar sem við vorum hjá pabba hans Magga, hann er þar í endurmenntun. Þar tókst mér nú að verða svo veik að ég komst varla úr húsi fyrstu dagana. Mikið er nú erfitt að vera veikur í öðru landi en mamma manns er í... En allavegna, ég fór nú samt eins mikið um og ég gat og sá til dæmis dýragarðinn, Carlsberg safnið, Tívolíið og margt fleira. En ég verslaði ekki neitt, frekar sorglegt.
Við komum heim 25. sæl og ánægð, þrátt fyrir veikindinn.

Jæja, best að fara að drífa sig heim úr vinnunni, nú er aðeins farið að rigna en það er stutt að labba.
bæ í bili lömbin mín,
Árný Hekla
